Gjóla
Maía
Maía
Couldn't load pickup availability
Peysan er prjónuð að ofan frá og niður úr tvöföldum þræði á hringprjón nr. 7. Gott er að lesa yfir alla uppskriftina áður en byrjað er að prjóna. Peysan er öll prjónuð með sléttu prjóni. Í berustykkinu er aukið út og gerðir laskar. Ermarnar eru prjónaðar á 40 cm hringprjón nr. 7. Einföld, skemmtileg og fljótprjónuð uppskrift.
Stærðir:
XS-S (M-L) XL-XXL
Mál á peysu (fyrir þvott):
Yfirvídd: 85 (100) 115
Málin eru byggð á peysunni fyrir þvott. Athugið að málin geta breyst eftir að peysan hefur verið þvegin. Handþvoið peysuna varlega og leggið hana síðan til þerris.
Garn:
Alpaca silki lace frá Diddas dye dream 100gr/800m eða
Angel lace frá Thelmu Steimann 100gr/800m
1 (1-2*) 2 dokkur
*: 1 dokka á að duga akkúrat fyrir stærð M-L miðað við þá lengd á búk og ermum sem tekin er fram í uppskriftinni, auk þess ef prjónfestan er rétt. Ég mæli þó með því að kaupa eina auka dokku svo að þú eigir örugglega nóg garn ef þú skildir prjóna lengri ermar/búk en tekið er fram í uppskriftinni, eða ef þú ert ekki með alveg rétta prjónfestu.
Annað sem þarf:
7 mm hringprjónar – 80 cm og 40 cm
Saumnál
Hjálparband eða næla
8x prjónamerki
Prjónfesta:
14 L slétt prjón og 20 umf. á prjóna nr. 7 = 10 x 10 cm
Eftir kaup færðu vefslóð senda í tölvupósti. Opna þarf vefslóðina í tölvupóstinum til að hlaða niður uppskriftinni.
Deila
