Skilmálar
Afhendingartími
Afhendingartími er að jafnaði 2–4 virkir dagar frá því að pöntun berst. Pantanir eru yfirleitt afgreiddar næsta virka dag og sendar með Dropp.
Athugið að pantanir sem berast um helgar eru afgreiddar næsta virka dag.
Hugarró Store ber ekki ábyrgð á töfum sem kunna að verða hjá flutningsaðilum.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.
Frír sendingarkostnaður fæst þegar verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að skrá rétt nafn, símanúmer og heimilisfang við pöntun.
Greiðslur
Hægt er að greiða með helstu debet- og kreditkortum í gegnum örugga greiðslugátt Teya. Allar greiðsluupplýsingar eru dulkóðaðar og Hugarró Store hefur hvorki aðgang að né geymir kortaupplýsingar viðskiptavina.
Verð og vöruframboð
Öll verð í vefverslun eru birt í íslenskum krónum.
Hugarró Store áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara og hætta við pantanir ef rangt verð hefur verið birt vegna mistaka eða tæknilegra vandamála.
Ef vara er uppseld eða ekki til á lager verður haft samband við viðskiptavin eins fljótt og auðið er og boðið upp á endurgreiðslu eða aðra lausn.
Skil og endurgreiðslur
Viðskiptavinur hefur 30 daga skilarétt frá móttöku pöntunar. Viðskiptavinur hefur rétt á endurgreiðslu innan 14 daga frá kaupum, en séu 14 dagar liðnir fær viðskiptavinurinn inneignarnótu eða getur skipt vörunni fyrir aðra vöru.
Til þess að hægt sé að taka við skilavöru þarf hún að vera ónotuð, í upprunalegum umbúðum og í fullkomnu ástandi.
Kvittun eða pöntunarnúmer þarf að fylgja með.
Við skil á garni áskilur Hugarró Store sér rétt til að skoða og vigta vöruna áður en endurgreiðsla eða inneign er afgreidd.
Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur nema um gallaða eða ranga vöru sé að ræða.
Ekki er hægt að skila tilboðsvörum nema vegna galla.
Til að óska eftir skilum skal senda tölvupóst á hugarro@hugarro.store.
Gallaðar eða rangar vörur
Ef vara reynist gölluð eða röng biðjum við þig að hafa samband eins fljótt og auðið er með myndum og pöntunarnúmeri svo hægt sé að finna lausn sem fyrst.
Persónuvernd
Allar persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og eingöngu notaðar til að afgreiða pantanir og veita þjónustu.
Hugarró Store deilir aldrei upplýsingum viðskiptavina með þriðja aðila nema nauðsynlegt sé vegna greiðslu- eða sendingarþjónustu.
Samskiptaupplýsingar
Hugarró Store
hugarro@hugarro.store
hugarro.store