Gjóla
Gjóla prjónataska - brún
Gjóla prjónataska - brún
Couldn't load pickup availability
Prjónataskan frá Gjóla design var hönnuð með notagildi og þægindi í huga. Fullkomin taska til að taka prjónana með sér hvert sem er þar sem hún er bæði stílhrein og sparileg.
Taskan opnast bæði að framanverðu og að aftanverðu með rennilás sem rennist í báðar áttir. Að framan er hægt að koma fyrir stuttum sokkaprjónum, víxlanlegum prjónum og heklunálum. Einnig eru þar vasar til að geyma hringprjóna og snúrur fyrir víxlanlega prjóna auk lítils vasa til að geyma ýmsa fylgihluti. Að aftan er rúmgott hólf til að geyma prjónaverkefni og garn. Þar eru tveir opnir vasar og einn lokaður renndur vasi. Utan á töskunni að aftan er renndur vasi. Taskan er úr PU leðri og fóðruð með 100% bómullar canvas. Töskunni fylgir stillanleg ól.
Hæð: 20 cm
Breidd: 29 cm
Dýpt: 9 cm
Deila
