Gjóla
Vaka sjal
Vaka sjal
Couldn't load pickup availability
Prjónar:
60 cm hringprjónn nr. 4,5
Garn:
200 gr Alpine merino frá Knits by Cindy Ekman (50gr = 100m)
Annað efni:
Prjónaframvindumerki eða næla
Gróf nál til frágangs
Prjónfesta:
Stuðlabergsmynstur eftir þvott
22 lykkjur = 10 cm
Sjalið er prjónað fram og til baka og aukið út/fækkað lykkjum í hliðum þess. Fyrstu og síðustu þrjár lykkjurnar á prjóninum eru kantlykkjur. Fyrstu þrjár lykkjurnar eru alltaf prjónaðar sléttar og síðustu þrjár lykkjurnar eru alltaf teknar óprjónaðar með bandið fyrir framan. Sjalið er prjónað eftir stuðlabergsmynstri. Eftir því sem lykkjunum fjölgar því fleiri lykkjur getur þú prjónað eftir mynsturmyndinni. Byrjað er að prjóna mynstrið neðst í hægra horninu á mynsturmynd A. Þegar búið er að prjóna mynsturmynd A er farið yfir í mynsturmynd B. Mynstrið er prjónað fram og til baka svo mynsturmyndin er lesin fyrst frá hægri til vinstri og síðan vinstri til hægri.
Deila
