Fara í vöruupplýsingar
1 af 2

Gjóla

Hjartataska

Hjartataska

Verð 850 ISK
Verð Tilboðsverð 850 ISK
Tilboð Uppselt
Magn

Taskan er prjónuð í hring á prjóna nr. 6. Lesið yfir alla uppskriftina áður en byrjað er að prjóna. Taskan er prjónuð með tveimur þráðum saman, með sléttu prjóni og mynsturprjóni. Fellt af með i-cord kanti. Hægt er að prjóna bandið í uppskriftinni til að sauma við töskuna eða nota tilbúið band og festa við töskuna.

Garn: 
50 gr. Katia Merino Baby (50 gr = 165 m.) saman með 100 gr. Katia Aqua Recycled cotton (50 gr = 100 m.) 
eða 
100 gr. Mandarin Naturell frá Sandnes Garn (50gr. = 130 m.)

Annað sem þarf: 
6 mm hringprjónar 60 cm
Gróf saumnál 

Prjónfesta: (eftir þvott)
16 L slétt prjón og 21 umferð á prjóna nr. 6 = 10x10cm 

Eftir kaup færðu vefslóð senda í tölvupósti. Opna þarf vefslóðina í tölvupóstinum til að hlaða niður uppskriftinni.

Skoða allar upplýsingar