Gjóla
Blær
Blær
Couldn't load pickup availability
Peysan er prjónuð neðan frá og upp í hring með sléttu prjóni. Ermarnar eru prjónaðar á hringprjón með magic loop aðferð(sjá myndband í uppskrift). Í berustykki er úrtaka og í affelling í hálsmáli. Athugið að það þarf alltaf að fitja mjög laust upp og fella af mjög laust.
Stærðir:
XS-M og (L-XXL)
Efni:
Katia Air Lux frá Katia (50g = 300m) 100g
eða
Jaipur Peace Silk frá BC garn (50g = 300m) 100g
eða
Leonora frá Permin (25g = 180m) 75g
Prjónar:
12 mm hringprjónn 80 cm
12 mm hringprjónn 60 cm (ef þú vilt sleppa því að prjóna allar ermarnar með magic loop – sjá uppskrift)
2 mm hringprjónn 60 eða 80 cm, bæði hentar.
Annað sem þarf:
Nál til frágangs
Prjónamerki
Hjálparnælur eða bandspotti
Teygjutvinni í lit sem passar við lit á garni ef þrengja þarf stroff
Erfiðleikastig: 2 af 5 ef þú kannt magic loop aðferðina – 3,5 af 5 ef þú kannt ekki magic loop aðferðina.
Eftir kaup færðu vefslóð senda í tölvupósti. Opna þarf vefslóðina í tölvupóstinum til að hlaða niður uppskriftinni.
Deila
